Þegar veðurspár eru reiknaðar í tölvu gerist það í þremur áföngum:
Tölvuspár, sem birtar eru á netinu eða annars staðar, hafa allar þann annmarka að þær eru ekki endurskoðaðar í ljósi nýrra athugana. Þeim er ekki breytt þótt samanburður við veðurathuganir kunni að sýna að þær séu orðnar alrangar. Misræmið leiðréttist ekki fyrr en tölvuspárnar eru reiknaðar næst en það er yfirleitt gert tvisvar á sólarhring.
Reiknilíkan Veðurmiðstöðvar Evrópuríkja í Reading í Englandi (ECMWF) er hannað með það fyrir augum að skila sem áreiðanlegastri spá allt að tíu daga fram í tímann.
Í slíkum líkönum verður að líta á allan lofthjúp jarðarinnar sem eina heild og mikil áhersla er lögð á að ná til allra veður-athugana, sem að gagni mættu koma, áður en spáin er reiknuð. Það er gert tvisvar á sólarhring. Stuðst er við veðurathuganir gerðar á miðnætti og hádegi að íslenskum tíma og er gagnasöfnun lokið um sex klukkustundum síðar.
Þá tekur við greining og úrvinnsla á gögnum og síðan sjálfur spáreikningurinn. Þetta ferli tekur um þrjár klukkustundir og að því loknu er niðurstaðan send til Veðurstofu Íslands.
Þá tekur við úrvinnsla af ýmsu tagi, sem unnin er á Veðurstofunni, hjá Siglingastofnun og víðar, og gera má rað fyrir að fullunnar afurðir liggi fyrir um hálfum sólarhring eftir að gagnasöfnun hófst.
Kennialda (m) Samanlögð vind- og undiralda.
Ölduspá, ECMWF frá 10 feb. 00:00. Spá keyrð út 10 feb. 11:31