Sjólag.is er upplýsingavefur Vegagerðarinnar fyrir sjófarendur við Ísland. Þar birtast bæði mæligögn og spár sem koma frá Vegagerðinni, Veðurstofu Íslands og Evrópsku veðurstofunni. Kortagrunnurinn byggir á gögnum frá Landmælingum Íslands og OpenStreetMap.
Gögn frá mælitækjum eru aðgengileg í opnum vefþjónustum á gagnaveita.vegagerdin.is.
Mæligögn, svo sem frá veðurstöðvum og ölduduflum, eru birt sjálfvirkt og eru ekki yfirfarin áður en þau birtast á kortinu. Þau eru því sett fram með fyrirvara um að skekkjur geti komið fyrir.
Athugasemdir, hugmyndir eða ábendingar um þróun sjolag.is má senda á netfangið:
vegagerdin@vegagerdin.is
Kennialda (m) Samanlögð vind- og undiralda.
Ölduspá, ECMWF frá 10 feb. 00:00. Spá keyrð út 10 feb. 11:31